Almar tekur við formennsku

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ, er sjálfkjörinn næsti formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hann var eini sveitarstjórnarmaðurinn sem skilaði inn framboðstilkynningu áður en frestur rann út á miðnætti. Almar tekur við formennskunni af Jóni Birni Hákonarsyni á landsþingi sambandsins í september. Almar hefur verið bæjarstjóri í Garðabæ í fjögur ár og setið í bæjarstjórn í tólf ár. Hann hefur setið í stjórnum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins síðustu ár. Almar Guðmundsson.RÚV / Ragnar Visage
Almar tekur við formennsku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd