Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur lokið fyrstu greiningu á stöðu námsefnis í stærðfræði grunn- og framhaldsskóla. Þrjátíu prósent kennara segja aðalnámsskrá styðja vel við skýra framvindu í námi og sextíu og tvö prósent framhaldsskólakennara meta stöðu nýnema frekar eða mjög veika. Lagt er til að stærðfræði verði skilgreind sem forgangsverkefni til næstu þriggja ára.