Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englands fær gríðarlega gagnrýni úr öllum áttum í enskum fjölmiðlum eftir tap liðsins gegn Argentínu í undanúrslitum HM í gær. Enska liðið var yfir í leiknum en Argentína kom til baka og vann 2-1 sigur eftir að Tuchel skipti yfir í mjög varnarsinnað kerfi og setti fleiri varnarmenn inn á völlinn.