Stjórnin vísaði fjárreiðum Brunavarna til lögreglu

Starfslok Péturs Péturssonar sem slökkviliðsstjórna Brunavarna Árnessýslu eru til komin vegna fjárreiða slökkviliðsins sem stjórn þess taldi rétt að vísa til rannsóknar lögreglu.Stjórn Brunavarna Árnessýslu greindi frá þessu í fréttatilkynningu. Þar segir meðal annars:„Við yfirferð stjórnar á tilteknum þáttum í starfsemi Brunavarna Árnessýslu komu fram upplýsingar sem stjórn taldi rétt að vísa til rannsóknar lögreglu. Málið varðar fjárreiður Brunavarna Árnessýslu. Stjórn Brunavarna Árnessýslu lítur málið alvarlegum augum. Með hliðsjón af því að málið er nú komið til rannsóknar hjá lögreglu telur stjórn ekki rétt að tjá sig frekar um efni þess að svo stöddu. Stjórn leggur áherslu á að rannsókn fari fram með þeim hætti sem lög mæla fyrir um og að réttur allra aðila verði virtur.“
Stjórnin vísaði fjárreiðum Brunavarna til lögreglu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd