Gróðureldar loga á um hundrað stöðum í Kanada.Mestur er eldurinn í Ontario-fylki í norðvesturhluta landsins. Þar var þetta myndskeið tekið inni í lest sem hafði verið stöðvuð nærri borginni Armstrong. Eldarnir umluktu lestina nánast alveg áður en hún fékk að fara af stað aftur. Allir sluppu ómeiddir.Reykurinn berst með vindi í suðausturátt og leggur meðal annars yfir borgina Toronto. Þar er mikið mistur yfir borginni og samkvæmt mælingum var loftið þar verra en í borgunum Nýju Delí á Indlandi og Kinshasa í Kongó sem alla jafna eru mest menguðu borgirnar.Mikil hitabylgja gengur yfir Norður-Ameríku þessa dagana en búist er við að það dragi úr henni um helgina.