Innkalla ídýfu vegna hveitis

Mjólkursamlag KS hefur innkallað nokkrar framleiðslulotur af Voga ídýfu með kryddi. Í innihaldslýsingu kemur ekki fram að ídýfan innihaldi hveiti sem er ofnæmisvaldur. Innköllunin nær yfir allar dósir af Voga ídýfu með kryddi sem eru merktar með best fyrir dagsetningar á bilinu 28. júlí til 30. október. Lotunúmerin eru 26-0744 til og með 26-1630.Fyrirtækið hvetur fólk sem hefur ofnæmi eða óþol fyrir hveiti til að henda vörunni eða skila henni í búð þar sem hún var keypt og fá endurgreitt. KS
Innkalla ídýfu vegna hveitis

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd