Dýraverndarsamband Íslands og Samtök um dýravelferð á Íslandi krefjast þess að ákvörðun Matvælastofnunar um veitingu leyfis til blóðmerahalds verði felld úr gildi. Samtökin segja blóðtöku í blóðmerahald hérlendis fara langt yfir alþjóðleg viðmið og gangi nærri heilsu og velferð hryssanna.