Kristófer Jónsson var um helgina tilkynntur sem nýr leikmaður ítalska félagsins Reggiana í ítölsku C-deildinni. Reggiana féll úr B-deildinni í vor og er stefnan sett beint upp aftur. Kristófer kemur til Reggiana frá Triestina hvar hann hafði spilað síðustu þrjú tímabil. Hann var lykilmaður í liði Triestina á liðnu tímabili sem féll niður í D-deildina eftir háan stigafrádrátt vegna fjárhagsörðugleika. Kristófer er miðjumaður sem fæddur er árið 2003 og hefur verið á Ítalíu síðan 2021. Hann gerir tveggja ára samning við Reggiana og hittir þar fyrir sinn fyrrum þjálfara, Attilio Tesser. Fótbolti.net ræddi við Kristófer um félagaskiptin.