Íslenska framleiðslufyrirtækið Glassriver og þýska félagið Network Movie, dótturfélag þýska almannaþjónustusjónvarpsins ZDF, hafa keypt réttinn að bókum Lilju Sigurðardóttur um Áróru, söguhetjuna í fimm bókum höfundarins.Variety greinir frá því að Network Movie hafi keypt réttinn að öllum fimm bókunum um Áróru og vinni að undirbúningi sjónvarpsþátta í samvinnu við Glassriver. Bækurnar eru Helköld sól, Blóðrauður sjór, Náhvít jörð, Drepsvart hraun og Dauðadjúp sprunga.Áður hafði verið samið um gerð sjónvarpsþátta sem byggja á þríleik Lilju, Gildrunni, Netinu og Búrinu, auk þess sem Lilja var meðal handritshöfunda þáttaraðarinnar Katla sem Netflix sýndi.Lilja sagði frá samningnum um Árórubækurnar á Facebook-síðu sinni í gær, sagði þær komnar í öruggar hendur og kvaðst hlakka til að sjá útkom