Erna Geirdal er fíngerð og lipur kona með stríðnislegt bros. Hún hefur tímalausan fatastíl, er heimsborgari, tungumálamanneskja og tónlistarunnandi. Ævi Ernu er um margt óvenjuleg fyrir konu af hennar kynslóð og það eru ástarsögur hennar líka. það voru tvær stórar ástir í lífi Ernu og hún giftist þeim þrisvar. Hún á fjögur börn, Alfonso Ara Cordova Geirdal, Ernu Dís Elenu Cordova Geirdal, Raúl Arturo Cordova Geirdal og Carlos Atla Cordova Geirdal, auk þess á hún tíu barnabörn.Anna Marsibil Clausen ræddi við Ernu Geirdal í Ástarsögum á Rás 1. Erna segir sögu sína í tveimur þáttum.Í þeim fyrri greinir hún til að byrja með frá afmælisdagbók sem hún rakst á sem unglingur. Bókin sagði mikinn sannleika þótt Erna vissi það ekki þá. AFMÆLISDAGABÓKIN HAFÐI LÖG AÐ MÆLA „Þetta var heima hjá bekkja