Bjarki Garðars til Dortmund (Staðfest)

Stjarnan tilkynnti rétt í þessu að félagið er búið að ná samkomulagi við Dortmund og er Bjarki Hrafn Garðarsson orðinn leikmaður þýska félagsins. Þýska stórliðið kaupir hann af Stjörnunni hvar hann er uppalinn. Bjarki er gríðarlega spennandi örvfættur framherji, rétt tæplega tveir metrar á hæð, sem fæddur er árið 2010 og varð 16 ára í febrúar. Hann hefur þegar spilað spilað 17 leiki fyrir unglingalandsliðin (U15-U17) og skorað í þeim átta mörk. Hann á að baki þrjá leiki í Bestu deildinni með Stjörnunni á þessu tímabili.
Bjarki Garðars til Dortmund (Staðfest)

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd