„Velkomin í samband við spjallmenni Hreyfils. Hvar viltu láta sækja þig?“Svona hefst símtal við spjallmenni Hreyfils, sem léttir undir með þjónustufulltrúum fyrirtækisins. Framkvæmdastjóri segir hana fengna til að bæta þjónustu við viðskiptavini og ekki standi til að segja upp starfsfólki.Haraldur Axel Gunnarsson er framkvæmdastjóri Hreyfils.„Við innleiðum þetta hægt og rólega og aðeins hluti þeirra símtala sem er hringt hérna inn á stöðina fer í gegnum þetta kerfi. Við fylgjumst daglega með árangrinum,“ segir Haraldur.„Þetta hefur gengið alveg þokkalega, en eins og má búast við þegar ný tækni er innleidd að þá gengur á ýmsu, en svona heilt yfir hefur þetta verið jákvætt. Eins og er þá tekur hún fyrst og fremst við einföldum leigubílapöntunum, en svo ef þetta verður flóknara eða viðskiptav