Ár frá því síðasta eldgos hófst

Eldgos hófst rétt fyrir klukkan fjögur aðfaranótt miðvikudagsins 16. júlí. Það var níunda eldgosið í Sundhnúksgígaröð og það síðasta til þessa. Landris við Svartsengi heldur þó áfram. Veðurstofan metur stöðuna þannig að líklegast sé að áframhaldandi hæg kvikusöfnun endi með nýju kvikuhlaupi eða jafnvel eldgosi. Eldgosið sem hófst fyrir ári síðan stóð yfir í þrjár vikur. Það átti sér nokkurn aðdraganda því kvikuhlaup með ákafri jarðskjálftavinnu hófst rétt fyrir miðnætti daginn áður. Gossprungan varð um 2,5 kílómetrar þegar hún var lengst en hún ógnaði ekki innviðum. Gasmengunar varð þó vart í byggð á Reykjanesskaga.
Ár frá því síðasta eldgos hófst

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd