Bandaríski herinn gerði einnig árásir á nokkra staði við suðurströnd Íran. Íranar réðust á bandarískar herstöðvar í Barein, Kúveit og Jórdaníu. Íranski byltingavörðurinn sagði að Bandaríkin hefðu gert árásir meðal annars nærri barnaspítala í Íran og því hefðu árásir þeirra á bandaríska herstöð í Jórdaníu verið til að hefna fyrir þá árás.Al Jazeera segir að að minnsta kosti 35 manns hafi verið drepnir og 330 séu særðir eftir árásir Bandaríkjanna í Íran undanfarna daga.Íranar slepptu konu af bandarískum og írönskum uppruna úr fangelsi og er hún á leið til Bandaríkjanna. Konan, Dena Karari, hefur verið í varðhaldi í Íran síðan í desember 2024. Donald Trump Bandaríkjaforseti þakkaði Írönum fyrir að leysa konuna úr haldi í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social.