Gjöf Erdogans veldur víða vandræðum

Skammbyssurnar sem Recep Tayyip Erdogan forseti Tyrklands gaf öllum þjóðarleiðtogum NATO-ríkja á leiðtogafundi þeirra í Ankara í síðustu viku hafa valdið ýmiss konar vandræðum. Í sumum tilvikum, eins og á Íslandi, hefur vopnið alls ekki komið til landsins og í öðrum hefur þurft að grípa til sérstakra ráðstafana enda er innflutningur á svona vopni víða bannaður eða sætir verulegum takmörkunum.Gjöfin var skammbyssa af gerðinni Gümüşay .357 Magnum. Með fylgdu sex skot í sérstökum kassa. Nafn hvers leiðtoga var áletrað á byssuna. MKE, vopnaframleiðandi tyrkneska ríkisins, framleiddi byssuna en framleiðslunni var hætt um aldamót. Byssan var pökkuð inn og því uppgötvuðu margir leiðtogar ekki hvað var í pakkanum fyrr en löngu eftir að tekið var við honum. Með byssunni fylgdu sérstök skilaboð um a
Gjöf Erdogans veldur víða vandræðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd