Hvað getum við lært af reynslu Breta af Evrópusambandinu? Ekki hvarflaði að Bretum að þeir væru að afsala sér löggjafarvaldi og dómsvaldi. Það lærðu þeir eftir inngönguna; Evrópudómstóllinn og reyndar líka Mannréttindadómstól Evrópu kenndu þeim lexíuna. Evrópudómstóllinn gat ógilt ensk lög og tilskipanir settar af embættismönnum ESB gengu framar lögum breska þjóðþingsins. Hvorki meira né minna.