Um 800 virkir skógareldar geisa nú í Kanada og ríflega hundrað þeirra teljast vera stjórnlausir. Um 1,9 milljón hektara lands hefur brunnið sem er álíka stórt svæði og Slóvenía.Skógareldarnir ógna ekki einungis lífi á jörðu niðri og gróðurlendi heldur ógnar mengun af þeirra völdum heilsu fjölda manns í Kanada og Bandaríkjunum.Í gær mældust loftgæði í Toronto þau verstu af öllum stórborgum heimsins og kanadísk yfirvöld ráðlögðu íbúum að vera innandyra. Svipað ástand var í Montreal og fleiri borgum í Kanada. Reykurinn frá skógareldunum hefur borist áfram til Pennsylvaníu, New York, og fleiri ríkja í norðaustur Bandaríkjunum.Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, ráðlagði íbúum borgarinnar að forðast óþarfa útiveru og nýta sér kælistöðvar víða um borgina.