Áfram hlýtt fyrir austan

Íbúar og ferðalangar austanlands mega eiga von á góðu veðri í dag þó að hitinn nái ekki sömu hæðum og í gær. Útlit er fyrir allt að 22 stiga hita. Bleytan hefur verið allsráðandi suðvestan til undanfarið. Þar verður bjart af og til framan af degi en sums staðar dálítil væta. Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld:Suðvestlæg átt, fimm til þrettán metrar á sekúndu, hvassast norðvestantil. Skýjað á vesturhelmingi landsins og dálítil væta af og til. Bjart með köflum austanlands, en líkur á stöku skúrum þar síðdegis.Vestlæg átt, þrír til tíu metrar á sekúndu, og yfirleitt bjart á morgun, en skýjað vestantil framan af degi.Hiti 11 til 22 stig, hlýjast á Austur- og Suðausturlandi.
Áfram hlýtt fyrir austan

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd