Keir Starmer, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, fer til Úkraínu í dag til fundar við Volodomyr Zelensky, forseta Úkraínu.Þetta verður síðasta ferð Starmers til landsins sem forsætisráðherra en hann víkur úr embætti í næstu viku fyrir Andy Burnham sem tekur við af Starmer sem leiðtogi Verkamannaflokksins á morgun og sem forsætisráðherra á mánudag.Búist er við að Starmer ítreki stuðning Bretlands við Úkraínu og að sá stuðningur haldi áfram þó að skipt verði um í brúnni í Bretlandi.Starmer tilkynnti um afsögn sína 22. júní. Þrátt fyrir dvínandi vinsældir hans heima fyrir er hann sagður njóta virðingar margra erlendra þjóðarleiðtoga, sér í lagi fyrir stuðning sinn við Úkraínu og skuldbindingar við Atlantshafsbandalagið.Starmer og Emmanuel Macron forseti Frakklands hafa leitt undirbúning f