Tveir voru drepnir og að minnsta kosti sex særðust í flugskeyta- og drónaárásum Rússa á Kyiv í Úkraínu í nótt.Borgarstjóri Kyiv, Vitali Klitschko, greindi frá mannfallinu á samfélagsmiðlum. Hann greindi einnig frá árás á vöruhús og sagði að brot úr flugskeyti hefði hafnað á nærliggjandi byggingum.Árásirnar í Kyiv áttu sér stað aðeins nokkrum klukkustundum eftir heimsókn Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, en Úkraína og ESB undirrituðu í gær samning um nánari samvinnu í varnarmálum. Þau ætla meðal annars að vinna saman að þróun og eflingu drónaframleiðslu.Þá voru gerðar dónaárásir á Kharkiv í Norðaustur-Úkraínu í nótt. Ekki hefur greint frá mannfalli í þeim árásum.Rússneskar hersveitir gerðu einnig miklar árásir víða um Úkraínu í gær. 13 voru drepnir og 50 sæ