Amnesty International segja handtökur og dauðsföll í fangelsum jafngilda glæpum gegn mannkyni

Yfir 90.000 handahófskenndar handtökur hafa verið gerðar í El Salvador síðan forseti landsins Nayib Bukele lýsti yfir neyðarástandi í landinu árið 2022. Þá hafa að minnsta kosti 470 dauðsföll orðið í varðhaldi á þeim tíma. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Amnesty International sem birt var í gær.Í nokkrum tilfellum þar sem fólk hafði látist í varðhaldi voru ummerki um líkamlegt ofbeldi eða heilsufarslega vanrækslu sem samræmdist ekki opinberum gögnum um dánarorsök fólksins. Margir hinna látnu höfðu ekki hlotið dóm.Í skýrslunni kemur fram að fjöldahandtökur, ásakanir um pyntingar og dauðsföll í varðhaldi sé ekki hægt að skilgreina sem stök atvik, heldur frekar sem skipulagt ofbeldi sem miðað við umfang og skipulag gæti jafngilt glæpum gegn mannkyni. RÍKISSTJÓRN BUKELE ÁÐUR SÖKUÐ UM BROT Á
Amnesty International segja handtökur og dauðsföll í fangelsum jafngilda glæpum gegn mannkyni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd