Hermenn þurfa að láta mæla testósterón

Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Pete Hegseth, tilkynnti í gær að hermenn 30 ára og eldri þurfi að fara í mælingu á testósterón hormóni í árlegri heilsufarsskoðun hermanna.Hegseth greindi frá þessu í myndskeiði á X. Hann sagði að mælingarnar yrðu gerðar til að greina hvort hermenn skorti testósterón og til að tryggja að hermenn hefðu rétt gildi til að geta náð sem mestum árangri.Þeir hermenn sem mælast með lágt testósterón hafa val um það hvort þeir fari í hormónauppbótarmeðferð og hermenn undir 30 ára aldri geta einnig valið um að fara í mælingu.Testósterón hormón minnkar með hækkandi aldri hjá konum og körlum. Hegseth notaði kynjahlutlaus orð í myndskeiðinu og sagði ekkert til um það hvort konur í hernum þyrftu einnig að gangast undir mælingar á testósteróni.
Hermenn þurfa að láta mæla testósterón

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd