900 umframdauðsföll rakin til hitabylgjunnar

Par skýlir sér fyrir sólinni í Amsterdam.EPA / ROBIN UTRECHTYfirvöld í Hollandi segja að yfir 900 fleiri dauðsföll hafi verið í landinu í lok júní og byrjun júlí þegar hitabylgja gekk yfir vestur Evrópu. Dánarorsök þeirra sem létust er ekki þekkt en talið er að dauðsföllin megi rekja til hitabylgjunnar. Margir hinna látnu voru 80 ára og eldri og bjuggu í suður og austur Hollandi þar sem hitinn náði 40 gráðum á sumum svæðum.Fleiri lönd í Evrópu hafa einnig greint frá hærri tíðni dauðsfalla í hitabylgjunni, líkt og Belgía, Bretland, Frakkland og Spánn. Hópur alþjóðlegra veðurfræðinga, World Weather Attribution (WWA), segir að hitabylgjan í júní hefði verið nær óhugsandi án loftslagsbreytinga.
900 umframdauðsföll rakin til hitabylgjunnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd