Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, var spurð út í nýja frumvarpið sem snýr að símabanni fyrir börn, fjórtán ára og yngri, í Reykjavík síðdegis en hún sagði það tilkomið eftir ákveðna vakningu hvað málið varðar hjá íslenskum stjórnvöldum. Bannið yrði vonandi orðið að veruleika fyrir næstu áramót en að það væri alfarið til þess hugsað að vernda börn.