Mótorhjól brann til kaldra kola á leið heim úr skoðun

Nýkeypt mótorhjól Ómars Geirssonar brann til kaldra kola á Hámundstaðarhálsi á leið heim frá Akureyri eftir að hann varð var við bilun og stöðvaði það við vegkantinn.Ómar hafði aðeins átt Honda Goldwing, árgerð 1988, í sex daga þegar óhappið varð fyrr í dag.Hann hafði ekið með hjólið frá Siglufirði til Akureyrar í ástandsskoðun fyrr um daginn og segir að það hafi staðist skoðun án athugasemda.Frá þessu greindi hann frá á Facebook-síðu sinni. Greint var frá atvikinu á vef Tíunnar.„Ég hefði fengið sekt ef ég hefði farið með það eftir 1. ágúst, þannig að ég fór með það í skoðun núna,“ segir Ómar í samtali við fréttastofu. FANN AÐ HJÓLIÐ VAR ORÐIÐ ÞUNGT Í AKSTRI Á heimleiðinni varð Ómar var við bilun í hjólinu og ákvað að stöðva farartækið á veginum til að athuga hvað væri að. „Ég fann að h
Mótorhjól brann til kaldra kola á leið heim úr skoðun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd