Mótorhjólakappinn Ómar Geirsson varð var við bilun í fornhjólinu sínu á leið heim frá Akureyri en stuttu seinna fór að rjúka undan hjólinu að aftan. Mótorhjólið brann til kaldra kola fyrir augunum á honum en hann hafði keypt það skömmu áður og var nýkominn með það úr ástandsskoðun.