Lengja opnunartíma í Salalaug á sunnudögum

Frá og með 19. júlí til 27. september verður opnunartími Salalaugar lengdur á sunnudögum til kl. 22:00. Opnunartíminn lengist því um tvo tíma, en nú er opið til 20:00 í laugum Kópavogs um helgar.„Við erum að svara ákalli bæjarbúa um að lengja opnunartíma sundlauga um helgar,“ er haft eftir Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra Kópavogs í tilkynningu á vef bæjarins.Ef vel tekst til stefnir bærinn einnig að því að lengja helgaropnun í Kópavogslaug.Breytingin er í samræmi við ákvörðun bæjarins um að bregðast við aukinni eftirspurn eftir lengri opnun sundlauga og auka þjónustu íbúa með tilraunaverkefni.Kópavogsbær
Lengja opnunartíma í Salalaug á sunnudögum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd