Framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur segir fósturbarnakerfið lengi hafa verið undirfjármagnað og ábyrgðinni varpað á sveitarfélögin. Kerfið þarfnist gagngerrar endurskoðunar.Í skýrslu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála um fósturbörn sem birtist í gær kom fram að 46% fósturheimila hefðu ekki tilskilin leyfi og að eftirlitsheimsóknum barnaverndar væri ábótavant. Stofnunin beinir fjölda tilmæla til barnaverndar sveitarfélaganna um að bæta verklag.Þyrí Halla Steingrímsdóttir er framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur. Það er stærsta barnaverndarþjónusta landsins. Hún segir ýmislegt í skýrslunni hafa komið á óvart en í það heila sé hún ágætis úttekt á stöðunni.Af 194 börnum í fóstri hjá Reykjavík eru 74 á fósturheimilum sem ekki hafa gild leyfi. Þetta kom barnavernd Reykjavíkur á