Þjóðaratkvæðagreiðslan lýðræðisleg æfing fyrir þjóðina

Forseti Íslands segir að margir sem tjá sig um þjóðaratkvæðagreiðsluna um viðræður við ESB í lok sumars geti vandað orðræðuna betur. Hún hvetur fólk til að staldra við og hugsa áður en það talar.Alþingi samþykkti í lok maí þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þjóðaratkvæðagreiðslan verður 29. ágúst og nú berjast báðir hópar um athygli kjósenda, þeir sem ætla að segja já og þeir sem ætla að segja nei.„Þarna er lýðræðisleg æfing fyrir þjóðina og ég vona og vil treysta því að þjóðin ætli að nýta það tækifæri vel til að æfa sig í að skiptast á skoðunum með virðingu. Ég hvet alla sem tala hátt, skrifa í hástöfum, tjá sig mikið og deila upplýsingum að staldra við,“ segir Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, í viðtali við fréttastofu.
Þjóðaratkvæðagreiðslan lýðræðisleg æfing fyrir þjóðina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd