Erfitt fyrir ferðaþjónustu í Hólminum að missa Baldur

Veitingamaður í Stykkishólmi segir tilfærslu Breiðafjarðarferjunnar Baldurs reiðarslag fyrir ferðaþjónustu í bænum. Ferjan, sem alla jafna siglir yfir Breiðafjörð, hefur siglt á milli lands og Vestmannaeyja síðan í júní vegna bilunar í Herjólfi.„Þetta er að hluta til lífæðin hérna yfir fjörðinn og út í Flatey og á suðurfirði Vestfjarða, þannig að þetta hefur gríðarlega mikið að segja ekki bara fyrir okkur heldur Vestfirðinga líka,“ segir Sæþór Þorbergsson sem rekur veitingastaðinn Narfeyrarstofu í Stykkishólmi.„Hluti af þessu fólki sem fer með ferjunni gistir, það nýtur kvöldsins og eyðir deginum hérna jafnvel, kemur kannski um hádegi og fer svo með ferjunni daginn eftir. Þetta er mikið skarð höggið.“Vegagerðin segir Baldur eiga að snúa aftur til Breiðafjarðar fyrir næstu mánaðamót. Búið e
Erfitt fyrir ferðaþjónustu í Hólminum að missa Baldur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd