Franska þingið samþykkir lög um dánaraðstoð

Frakkland er orðið tíunda Evrópuríkið til þess að samþykkja lög um dánaraðstoð. Frumvarp um að fólk geti sótt um dánaraðstoð í ákveðnum tilvikum var samþykkt nú á sjötta tímanum.Samkvæmt frumvarpinu getur fullorðið fólk með ólæknandi sjúkdóm fengið aðstoð við að deyja – í ákveðnum tilvikum. Leiðin hefur ekki beint verið greið. Upphafsmaður frumvarpsins, sem nú er hættur á þingi, lýsir henni sem maraþonhlaupi með hindrunum.Frumvarpið kom fyrst fram fyrir 14 árum og hefur tekið ýmsum breytingum. Það var loks samþykkt í neðri deildinni en hafnað í öldungadeildinni. Raunar hefur neðri deildin samþykkt þrjár útgáfur af frumvarpinu og samkvæmt stjórnarskrá hefur neðri deildin lokaorðið ef ekki tekst að leysa ágreining.Málið fer næst fyrir stjórnlagaráð, sem þarf að staðfesta að ákvæði frumvarpsi
Franska þingið samþykkir lög um dánaraðstoð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd