Adolf Ingi Erlingsson, fyrrverandi íþróttafréttamaður, starfsmaður hjá RÚV og í dag leiðsögumaður, hefur fengið svar við fyrirspurn sinni sem hann sendi Stefáni Eiríkssyni útvarpsstjóra eftir að honum var að eigin sögn nóg boðið vegna áfengisauglýsinga í Ríkissjónvarpinu. Í svari sínu segir Stefán að fjölmiðlanefnd hafi tekið málið fyrir á sínum tíma og látið það niður falla en Adolf sakar Ríkisútvarpið um að skýla sér á bak við fjölmiðlanefnd.