Það taka margir stefnuna í sólina enda þungbúnir dagar að baki, og fram undan, á höfuðborgarsvæðinu. Eftirspurnin er mikil þegar svona viðrar, en Heimsferðir fljúga tæplega fimmtán hundruð manns í sólina í hverri viku.„Það gengur bara ótrúlega vel, það er bara búið að vera stöðugar hringingar í marga daga. Sérstaklega síðustu fjóra til fimm dagana og það er bara raunverulega allt að seljast upp, sérstaklega þegar stutt er í brottför því fólk vill fara sem allra fyrst út,“ segir Tómas J. Gestsson, framkvæmdastjóri Heimsferða.