Innbrot og hústökur eru daglegt brauð á Stúdentagörðum í Reykjavík. Framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta segir stofnunina einungis bregðast við þegar um mynstur sé að ræða.Íbúar stúdentagarða Háskóla Íslands hafa þurft að þola það að rúður séu brotnar og brotist sé inn, að ókunnugir geri sig heimakomna í almenningsrýmum og steli eigum íbúa sé af þeim.Félagsstofnun stúdenta á og rekur yfir sextán hundruð leiguíbúðir í Reykjavík sem flestar eru í byggingum með sameiginlegum rýmum. Heiður Anna Helgadóttir, framkvæmdastjóri FS, segir byggingarnar oft og tíðum fjölmennar og mikinn umgang um innganga. Íbúar þurfi þar af leiðandi að vera meðvitaðir þegar þeir gangi um.„Við höfum verið að óska eftir því við íbúa þegar svona kemur upp að þeir gangi um húsið með þeim hætti að óviðkomandi aðilar