Farfuglar koma nú að jafnaði tíu til tuttugu dögum fyrr til landsins en fyrir tæpum 40 árum. Þetta kemur fram í nýrri vísindagrein feðganna Gunnars Tómassonar og Tómasar Grétars Gunnarssonar.Greinin er byggð á skráningum komutíma sautján algengra farfuglategunda í uppsveitum Árnessýslu á árunum 1988 til 2025. Skráningarnar sýna að 14 af þeim 17 tegundum sem taldar voru koma fyrr en áður. FUGLAR KOMI FYRR GEFIST FÆRI Á Tómas Grétar Gunnarsson segir að þeir fuglar sem komi skemur að komi að jafnaði fyrr til landsins, gefist færi á.„Þegar hlýnar þá batna skilyrði eða verða hagstæð skilyrði fyrr á vorin og það er almennt meðal fugla, þá er samkeppni um óðöl og maka og auðlindir, þannig að ef það er hægt að koma fyrr þá gera þeir það gjarnan,“ segir Tómas.Hann segir muninn á langdrægum og sk