„Þetta kom okkur því miður ekki mjög á óvart“

Formaður félags fósturforeldra segir að leyfakerfi sem komið var á 2022 hafi reynst flókið í framkvæmd. Úttekt Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála afhjúpi tækifæri til úrbóta og með henni sé loksins komið yfirlit um öll börn í fóstri og fósturheimili.„Ef við ætlum að fara að bæta þetta kerfi þá þurfum við að vita hvert umfangið er,“ segir Guðlaugur Kristmundsson, formaður Félags fósturforeldra.Úttekt Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála sýnir fram á að um 46% fósturheimila hafi ekki tilskilið leyfi til fósturs. Þá reyndist eftirlitsheimsóknum barnaverndarþjónustu ábótavant í mörgum tilvika.Niðurstöður úttektarinnar komu Guðlaugi ekki á óvart og segir þær ríma við þá aðstoð sem Félag fósturforeldra veitir meðlimum sínum. Hann fagnar úttektinni enda hafi félagið lengi kallað eftir
„Þetta kom okkur því miður ekki mjög á óvart“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd