Farþegi réðst á leigubílstjóra með hnífi

Farþegi réðst á leigubílstjóra í Reykjavík á mánudagskvöld og stakk hann með hnífi. Hlúa þurfti að leigubílstjóranum á sjúkrahúsi eftir árásina.Bylgja Hrönn Haraldsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu, segir leigubílstjórann hafa ekið þeim sem grunaður er um árásina í Austurbæ Reykjavíkur. Hvorki er talið að mennirnir hafi þekkst né að þeir hafi átt í deilum fyrir árásina.Bylgja segir árásina alvarlega en leigubílstjórinn hafi verið útskrifaður af sjúkrahúsi og honum heilsist ágætlega. Spurð hvort sá grunaði sé í gæsluvarðhaldi segir Bylgja hann vistaðan á viðeigandi stofnun.Árásin er til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Farþegi réðst á leigubílstjóra með hnífi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd