FS, Félagsstofnun stúdenta, hefur sent skipulagsfulltrúa Kópavogsbæjar erindi um uppbyggingu 144 stúdentaíbúða á Kársnesi. Um er að ræða einstaklingsíbúðir sem að meðaltali verða tuttugu og níu fermetrar að stærð. Í samtali við Heiði Önnu Helgadóttur framkvæmdastjóra FS kemur fram að stöðug vöntun sé á stúdentaíbúðum.