Segja að Rússar gætu verið að undirbúa árás á Eystrasaltsríkin eða Pólland

Leyniþjónustugögn frá Litáen benda til þess að Rússar séu mögulega að undirbúa einhvers konar aðgerðir gegn Eystrasaltslöndunum – Eistlandi, Lettlandi og Litáen – eða Póllandi. Þetta segir Gitanas Nauseda forseti Litáen í viðtali við fréttaveituna BNS sem starfar í Eystrasaltslöndunum.Fjölmiðlar hafa flutt nokkrar fréttir af því að Rússar séu að undirbúa minni árásir sem beinast að mikilvægum innviðum í þessum löndum. Nauseda segir leyniþjónustuna hafa fengið vísbendingar í þessa veru. „Þær gefa ekki til kynna sérstakan stað eða tíma því það er einfaldlega ekki hægt að komast að því. Það er ekki einu sinni víst að þeir séu með áætlun tilbúna og við vitum kannski aðeins um hvernig þetta er undirbúið og hvert markmiðið er.“Nauseda segir að Litáar hafi gert ráðstafanir til að styrkja mikilvæg
Segja að Rússar gætu verið að undirbúa árás á Eystrasaltsríkin eða Pólland

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd