„Til allra þeirra sem hafa breytt eða bætt líf sitt vegna ríkisstjórnar Verkamannaflokksins, og þeirra sem víða um landið eiga erfitt með að láta í sér heyra; þið eruð ástæðan fyrir því að ég byrjaði í stjórnmálum. Til konu minnar og barna, ég elska ykkur. Bless.“Svona endaði Keir Starmer lokaræðu sína á breska þinginu, eftir síðasta fyrirspurnartímann sem hann situr sem forsætisráðherra Bretlands. Hann fékk standandi lófatak frá hundruðum þingmanna. Hann þakkaði líka þingmönnum, embættismönnum og pólitískum samstarfsmönnum og sagðist stoltur af því sem ríkisstjórnin hefði áorkað.Keir Starmer lætur af embætti forsætisráðherra á mánudag og þá tekur Andy Burnham við. Starmer hét honum fullum stuðningi.