Samtök verslunar og þjónustu hafa kært framgöngu Vinnueftirlitsins sem stöðvaði innflutning kínverskra vinnuvéla þar sem þær stæðust ekki öryggiskröfur.Vinnueftirlitið hefur síðustu mánuði stöðvað innflutning fjölda vinnuvéla. Tugir véla eru því ýmist fastar í tollinum eða í geymslu hjá eigendum sem hvorki mega nota þær né selja. Stórir gámar af vinnuvélum voru sendir til baka eftir að í ljós kom að vélarnar stóðust ekki samevrópskar öryggiskröfur, í það minnsta að mati Vinnueftirlitsins.Vélarnar eru flestar með CE-merkingu sem á að tryggja öryggi og gæði. Í sjónvarpsfréttum í gær var sagt frá því að margar þeirra væru keyptar á sölusíðum á netinu, en flestar af kínverskum framleiðendum sem selja vélar sömu gerðar í fjölda Evrópuríkja. Þeir sem fluttu vélarnar inn hafa orðið fyrir miklu fj