Alvotech gæti séð fram á „verulegan ávinning“ eftir að samkeppnisstaðan á markaði fyrir hliðstæðulyf við Simponi hefur breyst félaginu í hag, samkvæmt SEB, sem hefur hækkað verðmat sitt um nærri þriðjung. Greinendur sænska bankans búast við að sölutekjur verði dræmar á öðrum fjórðungi en veðja á að markaðurinn muni endurmeta hlutabréfaverð Alvotech til hækkunar á næstu tólf til átján mánuðum.