Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt áform um ný námslok á framhaldsskólastigi sem meðal annars er ætlað að mæta þeim nemendum sem horfið hafa frá námi vegna námsörðugleika. „Við verðum að tryggja fjölbreyttari námsleiðir og mæta ólíkum þörfum og áhuga nemenda,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra í samtali við mbl.is