Kjell Magne Bondevik, fyrrum forsætisráðherra Noregs, hefur snúist hugur varðandi mögulega ESB-aðild Noregs og vill nú þjóðaratkvæði um hvort fara skuli í aðildarviðræður strax á næsta ári. Bondevik var forsætisráðherra frá 1997 til 2000 og síðan aftur frá 2001 til 2005.