<div class="clearfix text-formatted field field--name-body field--type-text-with-summary field--label-hidden field__item"><p>Halldór Árnason, sem tekur við Val í haust, tók þá ákvörðun að ekki skyldi samið við Ara Leifsson, sem hafði verið sterklega orðaður við félagið.</p><p>Þetta herma heimildir 433.is. Samningur Ara við danska félagið Kolding rann út nýlega og töldu flestir að hann væri á leið í Val. Eftir að Hermann Hreiðarsson var látinn fara úr þjálfarastólnum á Hlíðarenda breyttist það hins vegar og Ari kemur ekki í Val. Er hann orðaður við önnur félög hér á landi.</p></div>