Norðmenn ættu að halda þjóðaratkvæðagreiðslu á næsta ári um hvort hefja eigi umsóknarferli um aðild að Evrópusambandinu, segir Kjell Magne Bondevik, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs.Bondevik ræddi þetta í viðtali við Nettavisen sem birtist í gær. Þar segir hann að staða heimsmálanna hafi breyst með slíkum hætti að hann hafi endurskoðað afstöðu sína til aðildar Noregs að Evrópusambandinu.Bondevik beitti sér gegn aðild Noregs að sambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslum 1972 og 1994. STJÓRNVÖLD VINNI HRATT Í BREYTTUM HEIMI „Ég tel að ríkisstjórnin eigi að vinna hratt og að við eigum þjóðin eigi að greiða atkvæði um það á næsta ári hvort hefja eigi umsóknarferli,“ segir hann í viðtalinu.Bondevik vísar meðal annars til þess að Rússar séu orðnir herskárri en þeir hafi verið síðustu áratugi, að