„Við Halla tókum strax ákvörðun að við ætluðum að skapa okkar framtíð. Við höfum alltaf ákveðið hvernig við viljum gera hlutina en auðvitað koma frávik og það er alltaf eitthvað sem getur gerst,“ segir forsetamakinn, kokkurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Björn Skúlason. Honum er umhugað að skapa sér fallegt líf, hlustar á innsæið og hafði hugrekki til að taka U-beygju í lífinu þegar hann fann að það var nauðsynlegt.