Víkingur vann tveggja leikja einvígi á móti ungversku meistarunum í Györ í 1. umferð Meistaradeildarinnar. Lokatölur í einvíginu urðu 3-2 Víkingi í vil eftir 2-2 jafntefli i Ungverjalandi í gær. Víkingur fer því áfram í 2. umferð forkeppninnar í Meistaradeildinni í fyrsta sinn í sögu félagsins. Víkingar eru því öruggir með að minnsta kosti sex Evrópuleiki til viðbótar og öruggir með sæti í umspili fyrir Sambandsdeildina. Með því að sigra Györ bættist ein fallhlíf til viðbótar á Evrópuleiðinni. Víkingur mætir ísraelsku meisturnum í Hapoel Be'er Sheva í 2. umferð forkeppninnar í Meistaradeildinni. Ef Íslandsmeistararnir sigra það einvígi eru þeir öruggir inn í Sambandsdeildina. Ef einvígið gegn Hapoel tapast þá falla Víkingar niður í 3. umferð forkeppninnar í Evrópudeildinni og ef það einvíg