Sameinuðu þjóðirnar segja að mikill niðurskurður á fé, stríðsátök og upplýsingaóreiða ýti undir hættu á að fjölmörg börn séu ekki bólusett. Það geti valdið því að faraldrar brjótist út.Nýjar tölur frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni og UNICEF gefa til kynna að 90% barna hafi fengið minnst einn skammt af bóluefni við barnaveiki, stífkrampa og kíghósta í fyrra og 85% barna hafi fengið þá þrjá skammta sem taldir eru nauðsynlegir. Þetta er aukning um eitt prósentustig frá árinu áður en þó lægra hlutfall en 2019, áður en heimsfaraldurinn skall á.Catherine Russell framkvæmdastjóri UNICEF segir í yfirlýsingu að þetta þýði að milljónir barna í viðkvæmri stöðu séu enn óvernduð vegna átaka, heimilisleysis og fátæktar. „Ekkert barn ætti að veikjast af sjúkdómi sem einfalt bóluefni getur komið í veg fyr