Atkvæðagreiðsla verður í franska þinginu í dag um hvort heimila eigi dánaraðstoð í landinu. Flutningsmaður lagafrumvarpsins segir að nú sjái fyrir endann á fjórtán ára deilum um málefnið í þinginu.Lögin voru samþykkt í neðri deild franska þingsins en þeim hafnað í öldungadeildinni. Ríkisstjórnin hefur með vísan í stjórnarskrá heimilað neðri deildinni að taka ákvörðun um löggjöfina.Sebastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, hefur farið fram á það að stjórnarskrárdómstóll landsins taki löggjöfina til athugunar eftir samþykkt. Þannig eigi að bregðast við því að vantað hafi upp á umræður í öldungadeildinni.Úrskurðir stjórnarskrárdómstóls Frakklands eru endanlegir og geta ógilt löggjöf eða lýst áhyggjum af ákveðnum hluta löggjafar.Verði lögin samþykkt þá bætist Frakkland í hóp Hollands, Be